Stefnumót í borginni
Oddvitinn Jón Gnarr fær sér kaffi á fundi með samstarfsfólki sínu í Besta flokknum í gærkvöldi. mbl.is/Ómar Óskarsson
Viðræður eru hafnar um meirihlutasamstarf í sveitarfélögum víða um land, bæði formlegar og sums staðar óformlegar. Í borginni hófust viðræður Besta flokksins og Samfylkingar í gær og verður fram haldið í dag.
Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, segir að um hálfgerðan stefnumótaleik að erlendri fyrirmynd sé að ræða. Það sé betra en að „rjúka beint í rúmið eins og tíðkast hefur“.
Á fyrsta fundinum komust fulltrúar flokkanna að samkomulagi um fundaskrá fyrir vikuna. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar, segir að farið hafi verið yfir sviðið og hugmyndir flokkanna séu ekki svo ólíkar. Gangi viðræður að óskum verður Jón Gnarr næsti borgarstjóri Reykvíkinga, en það er óhagganleg krafa Besta flokksins.






