Virkjanasinnar með sterka stöðu
Virkjanamál voru ofarlega á baugi í kosningabaráttunni í sveitarfélögum sem liggja að Þjórsá. mbl.is/RAX
Framboð sem stutt hafa virkjanir í Þjórsá sigruðu með talsverðum yfirburðum í Flóahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Í báðum sveitarfélögunum komu fram framboð sem lögðu áherslu á að áform um virkjanir yrðu lögð til hliðar, en þau náðu ekki þeim árangri sem þau vonuðustu eftir.
Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi fékk K-listi hreinan meirihluta og þrjá fulltrúa. N-listi, sem er á móti virkjunum, fékk 26,4% og einn mann. Í Flóahreppi vann R-listi mikinn sigur, fékk 72,4% atkvæða og fjóra menn. T-listi, sem er á móti virkjun, fékk 27,6% og einn mann.
Flóahreppur lét á síðasta kjörtímabili vinna aðalskipulag þar sem gert var ráð fyrir Urriðafossvirkjun. Allgóð samstaða var um málið í sveitarstjórn, en virkjunin er hins vegar umdeild bæði innan og utan sveitarfélagsins. Fyrir kosningarnar sameinuðust þeir listar sem voru í sveitarstjórn um nýtt framboð, R-lista. Jafnframt kom fram nýtt framboð, T-listi, sem lagði áherslu á að ekki yrði farið í þessa virkjun.






