„Víraðar“ viðræður í borginni

Dagur B. Eggertsson og Jón Gnarr ræðast við um meirihlutasamstarf í borginni. stækka

Dagur B. Eggertsson og Jón Gnarr ræðast við um meirihlutasamstarf í borginni.

Besti flokkurinn og Samfylking funda nú þriðja daginn í röð um myndun nýs meirihluta í Reykjavíkurborg. Ekki fæst uppgefið hvar „leynifundurinn“ fer fram.

Oddný Sturludóttir sem skipar annað sætið á lista Samfylkingarinnar vill lítið gefa upp um gang viðræðna. „Það gengur bara vel og andrúmsloftið er mjög gott,“ segir hún í samtali við Kosningavef mbl.is. 

Auk hennar sitja Dagur B. Eggertsson oddviti og Björk Vilhelmsdóttir, sem skipar þriðja sætið, fundinn. Fyrir Besta flokkinn sitja Jón Gnarr og Óttar Proppé.

Á morgun verður fleira fólk úr báðum flokkum kallað að borðinu að sögn Oddnýjar. Flokkarnir muni gefa sér góðan tíma í viðræðurnar.

The Wire afhent á leynifundi 

Á fésbókarsíðum Besta flokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík eru einu fréttirnar af viðræðunum í dag þær að Jón Gnarr hafi afhent Degi mynddisk með þáttunum The Wire, en Besti flokkurinn hafði lýst því yfir í kosningabaráttunni að það væri ófrávíkjanleg krafa að samstarfsfólk flokksins hefði horft á þættina. Þættirnir fjalla um undirheima Baltimore borgar í Bandaríkjunum.

Hvorki Dagur B. Eggertsson né Jón Gnarr hafa gefið kost á viðtölum við mbl.is í dag.

Samkvæmt leynifundadagskrá sem þegar hefur verið lögð fram á meðal annars að ræða verkaskiptingu á fundi morgundagsins. Auðlindamál og Orkuveitan voru hins vegar til umfjöllunar í dag samkvæmt dagskránni.

Að sögn Heiðu Kristínar Helgadóttur kosningastjóra Besta flokksins halda flokkarnir sig við áður boðaða leynifundadagskrá. „Það eru allir glaðir og þetta gengur bara vel," sagði Heiða í samtali við mbl.is.

Fagnaðarefni hve margar hugmyndir borgarbúar leggja fram 

Borgarbúum hefur síðustu daga gefist kostur á að leggja sínar hugmyndir inn í viðræðurnar í gegnum vefinn Betri Reykjavík. Alls hafa 2.284 hugmyndir hafa spunnist útfrá þeim 388 málum sem lögð hafa verið fram á vefnum.

„Það er mikið fagnaðarefni hversu margir Reykvíkingar eru búnir að segja skoðun sína á málefnum Reykjavíkur. Þetta er liður í áherslum beggja flokka um aukin áhrif íbúanna,“ segir Oddný.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is