Hætta viðræðum við VG í Borgarbyggð
Slitnað hefur upp úr meirihlutaviðræðum Samfylkingar, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna í Borgarbyggð. „Við ákváðum að slíta viðræðunum í morgun,“ segir Sigríður Guðbjörg Bjarnadóttir, oddviti framsóknarmanna. Framsókn og Samfylking hafa óskað eftir viðræðum við sjálfstæðismenn en bíða enn svars.
Áherslumunur var á hversu mikið og í hvaða málaflokkum skera mætti niður, segir hún. Einnig var ágreiningur um skiptingu embætta. „Umhverfismálin eru [VG] erfið. Það er helst sá málaflokkur sem þeir voru ekki samstíga okkur í.“
Sigríður segir Framsóknarflokkur og Samfylkingin hins vegar vera mjög samstíga og er bjartsýn á að meirihlutasamstarf takist vel fáist sjálfstæðismenn að borðinu. Hins vegar ítrekar hún að aldrei sé hægt að vita fyrirfram hvað muni gerast í pólitíkinni.
Framsókn, Samfylkingin og VG fengu að tvo fulltrúa hver flokkur í nýafstöðnum sveitarstjórnakosningum, en Sjálfstæðisflokkurinn þrjá.






