Vilja sveitarstjórann áfram

Fulltrúar flokkanna þriggja, sem mynda nýjan meirihluta í sveitarstjórn Norðurþings. stækka

Fulltrúar flokkanna þriggja, sem mynda nýjan meirihluta í sveitarstjórn Norðurþings. mbl.is/Hafþór

Nýr meirihluti í bæjarstjórn Norðurþings vill að Bergur Elías Ágústsson verði áfram sveitarstjóri á næsta kjörtímabili. Skrifað var í dag undir málefnasamning þriggja flokka, sem munu mynda meirihluta í sveitarfélaginu.

Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin hafa ákveðið að hefja meirihlutasamstarf í Norðurþingi. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur mynduðu meirihluta á síðasta kjörtímabili og sá meirihluti hélt í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag. Framsóknarflokkurinn, sem fékk 4 fulltrúa kjörna nú, bauð hins vegar öllum hinum flokkunum til viðræðna um meirihluta og varð niðurstaðan þessi. Vinstri grænir og Þinglistinn, eru þá í minnihluta í sveitarstjórninni.

Nýja meirihlutann skipa Gunnlaugur Stefánsson, Jón Grímsson, Hjálmar Bogi Hafliðason og Soffía Helgadóttir, Framsóknarflokki, Jón Helgi Björnsson og Olga Gísladóttir, Sjálfstæðisflokki, og Þráinn Gunnarsson, Samfylkingu. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is