Aldís áfram bæjarstjóri í Hveragerði
Ný bæjarstjórn Hveragerðisbæjar kom saman til fyrsta fundar í gær og var samþykkt á fundinum að Aldís Hafsteinsdóttir verði ráðin bæjarstjóri en hún
hefur gegnt því embætti undanfarin fjögur ár.
Í nýafstöðnum kosningum hlaut Sjálfstæðisfélag Hveragerðis 64,4% atkvæða eða hreinan meirihluta og fimm menn kjörna. A-listinn í Hveragerði hlaut 35,6% og tvo menn kjörna.
Forseti bæjarstjórnar verður Unnur Þormóðsdóttir og varaforseti Ninna Sif Svavarsdóttir. Í bæjarráð voru kosnir þeir Guðmundur Þór Guðjónsson, Eyþór H. Ólafsson og Róbert Hlöðversson. Nýr meirihluti hefur ákveðið að árlega muni bæjarfulltrúar skipta með sér verkum þannig að breytingar verði gerðar á skipan bæjarráðs á hverju ári.
Helstu verkefni nýrrar bæjarstjórnar verður að takast á við erfitt efnahagslegt umhverfi, nýta allar leiðir til að auka atvinnu á svæðinu um leið og íbúum Hveragerðisbæjar verða búnar bestu mögulegu aðstæður, að því er segir í fréttatilkynningu.






