Meirihlutaviðræður hafnar á Dalvík

Svanfríður Jónasdóttir stækka

Svanfríður Jónasdóttir

J - listinn mun ekki kæra úrskurð kjörnefndar sýslumannsins á Akureyri um niðurstöðu sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkurbyggð hinn 29. maí sl. J – listinn hefur nú hafið formlegar meirihlutaviðræður við A – listann, Byggðalistann og við það miðað að Svanfríður Jónasdóttir, oddviti J lista, verði áfram bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð og Kristján E Hjartarson oddviti A lista verði formaður bæjarráðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá J-listanum.

J - listinn er óháð framboð, ekki borinn fram af stjórnmálaflokki á landsvísu og trúnaður listans er eingöngu bundinn hagsmunum Dalvíkurbyggðar og íbúa sveitarfélagsins.

„Það er mat þeirra sem skipa J- listann að það séu hagsmunir sveitarfélagsins að óvissu ljúki sem fyrst og að bæjarstjórn með starfhæfan meirihluta taki til starfa svo fljótt sem verða má og vinni að þeim brýnu verkefnum sem fyrir liggja.

Það er ljóst að ýmsum finnst úrskurður kjörnefndar sýslumanns orka tvímælis og undrast að lögin skuli vera svo óljós að kjörstjórn Dalvíkurbyggðar og kjörnefnd sýslumanns komist að algerlega öndverðri niðurstöðu. J – listinn skorar því á Alþingi að taka lög nr. 5/1998 um kosningar til sveitarstjórna til endurskoðunar með það að markmiði að skýra ákvæði laganna um þau álitaefni er varða gild og ógild atkvæði og einnig þá ferla sem taka eiga við ef úrslit kosninga eru kærð og úrskurðað er um niðurstöðu," segir í fréttatilkynningu frá J-listanum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is