Nýr sveitarstjóri í Skaftárhreppi

Kirkjubæjarklaustur.
Kirkjubæjarklaustur. www.mats.is

Eygló Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri í Skaftárhreppi. Hún kemur til starfa um miðjan ágúst.

Eygló er menntaður viðskiptafræðingur og hefur undanfarin ár starfað sem skrifstofustjóri Reykhólahrepps.

Sambýlismaður Eyglóar er Bjarki Þór Magnússon, smiður, og eiga þau þrjú börn á aldrinum 4 til 14 ára. Fjölskyldan mun flytja á Kirkjubæjarklaustur í ágúst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert