Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 29.7.2010
| 16:46
| Uppfært
19:17
Niðurstaða um bæjarstjóra
Meirihluti bæjarstjórnar Akraness hefur samkvæmt heimildum Morgunblaðsins tekið ákvörðun um að ráða Árna Múla Jónasson í starf bæjarstjóra. Samkvæmt sömu heimildum verður tilkynnt um ráðninguna innan skamms.
Árni Múli var einn af 39 umsækjendum um starfið. Hann var skipaður fiskistofustjóri fyrir tæpu ári og hefur starfað á Fiskistofu frá árinu 1992
Hann er héraðsdómslögmaður og hefur meistarapróf í alþjóðlegum mannréttindalögum frá háskólanum í Lundi.
Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og óháðir og Vinstrihreyfingin-grænt framboð mynduðu nýjan meirihluta í bæjarstjórn Akraness eftir sveitarstjórnakosningarnar í maí.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






