Ásta Björg ráðin sveitarstjóri í Skagafirði
Ákveðið hefur verið að ráða Ástu Björgu Pálmadóttur, núverandi útibússtjóra Landsbanka Íslands á Sauðárkróki, sem sveitarstjóra sveitarfélagsins Skagafjarðar. Miðað er við að hún hefji störf um miðjan september.
Tilkynnt var fyrir helgi að enginn af 17 umsækjendum um starf sveitarstjóra Skagafjarðar yrði ráðinn og að hafin yrði leit að einstaklingi í starfið án auglýsingar. Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðaráðs Skagafjarðar, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki hafi náðst sátt í meirihlutanum í sveitarstjórn um neinn af þeim sem sóttu um og ekki verið taldar forsendur til þess að kalla neinn þeirra í viðtal.
Áður en starfið var auglýst var einnig gerð tilraun til þess að ráða í starfið án auglýsingar en án þess að það skilaði tilætluðum árangri.






