Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 25.8.2010
| 9:24
Margir sóttu um sveitarstjórastarf
Margir sóttu um störf sveitarstjóra og skrifstofustjóra Reykhólahrepps en umsóknarfrestur rann út mánudagskvöld. Segir á vef Reykhóla að tvær síðustu umsóknirnar hafi smollið inn í tölvupósti fimm mínútum fyrir miðnætti.
Fram kemur á vefnum að meðal umsækjenda um starf sveitarstjóra sé einn fyrrverandi alþingismaður.
Umsóknirnar verða væntanlega ekki teknar til efnislegrar meðferðar fyrr en eftir komandi helgi að Reykhóladögum afstöðnum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






