Kristrún aðstoðar Árna

Kristrún Heimisdóttir

Kristrún Heimisdóttir

Kristrún Heimisdóttir hefur verið ráðin aðstoðarkona efnahags- og viðskiptaráðherra. Hún var meðal annars aðstoðarkona Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur er hún gegndi embætti utanríkisráðherra á árunum 2007-2009.

Kristrún er lögfræðingur að mennt og hefur starfað sem slíkur hjá LEX lögmannsstofu, Samtökum iðnaðarins, félags- og tryggingamálaráðuneytinu og umboðsmanni Alþingis. Hún var framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar og hefur kennt lögfræði og heimspeki við Háskólana í Reykjavík, á Akureyri og á Bifröst.

Hún var fulltrúi Íslands í Stoltenberg-nefndinni um öryggis- og varnarmál Norðurlanda 2008-2009, sat í nefnd um endurskoðun stjórnarskrárinnar 2005-2007 og var varamaður í Seðlabankaráði 2003-2007 og varaþingmaður 2003-2009.

Kristrún hefur ritað fræðigreinar og haldið fjölda fyrirlestra á sviði lögfræði, réttarheimspeki og alþjóðamála,að því er segir á vef ráðuneytisins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is