Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 21.9.2010
| 13:54
Ásta tekin við í Skagafirðinum
Ásta Björg Pálmadóttir hefur tekið við embætti sveitarstjóra í Skagafirði. Hún tók við lyklum af Ráðhúsinu á Sauðárkróki úr hendi fráfarandi sveitarstjóra, Guðmundar Guðlaugssonar, sem þó mun aðstoða Ástu við að kynnast starfinu til næstu mánaðarmóta.
Ásta er fædd og uppalin í Skagafirði, hún sneri aftur í Skagafjörð fyrir 13 árum eftir nám og störf í Reykjavík og síðan hefur hún m.a. starfað hjá Fiskiðjunni á Sauðárkróki og nú síðast sem útibússtjóri Landsbankans á Sauðárkróki, samkvæmt fréttatilkynningu.
Ásta er gift Þór Jónssyni og eiga þau þrjú börn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






