Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 22.9.2010
| 8:18
Kosið beint í hverfisráð
Á borgarstjórnarfundi í gær var samþykkt tillaga Sjálfstæðisflokksins um að hefja undirbúning beinnar kosningar íbúa í hverfisráð Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.
„ Tilgangur tillögunnar er að auka markvisst íbúalýðræði í borginni og tryggja að íbúar hafi sem flest tækifæri til aðkomu að ákvörðunum á vettvangi Reykjavíkurborgar. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt að fulltrúar íbúa eigi þess kost að taka sæti í hverfisráðum en ekki aðeins til áheyrnar eins og nú er. Bein kosning getur farið fram á netinu eða með öðrum hætti sem best kemur til móts við óskir íbúa," segir í fréttatilkynningu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






