Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 1.10.2010
| 16:00
| Uppfært
4.11.2010
15:31
Stjórnlagaþing kostar 200 milljónir
Áætlað er, að útgjöld vegna stjórnlagaþings, sem á að koma saman 15. febrúar á næsta ári, og standa í tvo mánuði, verði um 200 milljónir króna. Þingið mun standa í 2 mánuði og skipað minnst 25 og mest 31 fulltrúa.
Áætlun fjármálaráðuneytisins frá í sumar gerði ráð fyrir að kostnaður við stjórnlagaþing verði á bilinu 160-250 milljónir en nákvæmari áætlun mun liggja fyrir þegar undirbúningsnefnd stjórnlagaþings lýkur störfum.
Þá er gert ráð fyrir því að í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir yfirstandandi ár verði sótt um framlag til að halda þjóðfund í haust og sinna ýmsum undirbúningi fyrir stjórnlagaþingið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






