Setja verði skýrar reglur um sjálfstæði þingsins

Íris Erlingsdóttir. stækka

Íris Erlingsdóttir.

Íris Erlingsdóttir, fjölmiðlafræðingur, fyrrverandi fréttamaður á Stöð 2 og fv. ritstjóri Gestgjafans, hefur boðið sig fram til stjórnlagaþings. 

Íris hefur undanfarin ár skrifað um land og þjóð fyrir íslenska og bandaríska fjölmiðla, þ.á.m. vefmiðilinn Huffington Post og Minneapolis Star Tribune.

„Ég tel ein veigamestu verkefni þingsins vera að setja skýrar reglur um sjálfstæði Alþingis og ótvíræð eftirlitsúrræði þess gagnvart framkvæmdavaldinu, sem og að setja afdráttarlausar reglur um ábyrgð valdhafanna. Því er mikilvægt að fulltrúar stjórnlagaþings tengist hvorki því pólitíska né peningalega hagsmunapoti sem grafið hefur undan trausti þjóðarinnar á mikilvægustu stofnunum lýðveldisins.

Stjórnarskráin verður einnig að geyma afdráttarlaus ákvæði um þjóðareign og þjóðhagkvæma nýtingu náttúruauðlinda, vernd tjáningarfrelsis og afnám hafta þess úr refsilöggjöf. Í tengslum við eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar verður ennfremur að eiga sér stað alvarleg umræða um þá grófu, ábyrgðarlausu og á tíðum glæpsamlegu misnotkun á hlutafélagaforminu sem valdið hefur þjóðfélaginu ómældu tjóni meðan fjárglæframennirnir hlæja alla leiðina til Tortola,“ segir hún í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is