Vill stuðla að skýrri og sterkri stjórnarskrá

Inga Jóna Þórisdóttir. stækka

Inga Jóna Þórisdóttir.

Inga Jóna Þórisdóttir hefur boðið sig fram til setu á stjórnlagaþingi. Hún er fædd árið 1976 og lauk MSc í stjórnun starfsþróunar frá Edinborgarháskóla árið 2009.

Árið 2005 lauk hún kennsluréttindum frá Háskólanum á Akureyri 2005, BS í landafræði frá Háskóla Íslands 2002 og BS í ferðamálafræðum frá Háskóla Íslands 2003.

Áður en hún hélt erlendis í nám starfaði hún sem framhaldsskólakennari við Flensborgarskólann í Hafnarfirði.

„Ég býð mig fram því ég vil taka þátt í því krefjandi verkefni að byggja upp nýtt Ísland. Ég er óflokksbundin og vil taka þátt í gagnrýnum uppbyggilegum umræðum sem miða að því að ná fram bestu mögulegu niðurstöðu hverju sinni. Á þann hátt vil ég stuðla að skýrri og sterkri stjórnarskrá sem þjóðin getur sameinast um. Ég tel mikilvægt að þingfulltrúar komi ekki til þings með of sterkar skoðanir á einstökum þáttum stjórnarskrárinnar heldur mæti vel lesnir og séu reiðubúnir að hlusta á rök og skoðanir annarra. Ég tel mig hæfa til að takast á við þetta krefjandi verkefni og bið því um þinn stuðning,“ segir Inga Jóna í tilkynningu. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is