Eiga að geta kosið með eðlilegum hætti

Dagur hvíta stafsins var haldinn 15. október sl. Dagur B. …
Dagur hvíta stafsins var haldinn 15. október sl. Dagur B. Eggertsson var einn þeirra sem studdist við stafinn. mbl.is/Ómar

Blindrafélagið sendi nýverið formanni landskjörstjórnar erindi þar sem minnt var á að huga þyrfti að því að kjörgögn vegna kosningar til stjórnlagaþings verði með þeim hætti að blindir og sjónskertir geti kosið með eðlilegum hætti. Félagið fékk staðfestingu á því að gengið verði í málið.

Fréttavefur Morgunblaðsins, mbl.is, greindi frá því fyrr í kvöld að fyrrverandi framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands hefði af því áhyggjur að ráðstafanir yrðu ekki gerðar fyrir blinda og sjónskerta. Vísaði hann þar í lög um stjórnalagaþing þar sem ekkert kemur fram um slíkar ráðstafanir.

Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélags Íslands, segir ráðstafanir vegna kosninga hér á landi í föstum skorðum til að tryggja aðgang blindra og sjónskertra. Þar sem kosningar til stjórnlagaþing eru hins vegar svo frábrugðnar öðrum kosningum hafi þótt rétt að vekja sérstaklega athygli á réttindum fatlaðra til að tryggja að kjörgögn yrðu útbúin á fullnægjandi hátt.

Kristinn segist ekki hafa fengið upplýsingar um það hjá Ástráði Haraldssyni, formanni landskjörstjórnar, hvernig kjörgögnin yrðu útbúin en segir að í erindi Blindrafélagsins hafi verið bent á að hægt væri að nýta sér leiðsögn Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar blindra, sjónskertra og daufblindra. Hann segist ekki efast um að þetta verði tryggt en félagið komi þó til með að fylgjast með því.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert