Meðalaldur frambjóðenda 47 ár

Frá þjóðfundi, sem haldinn var á síðasta ári. Annar þjóðfundur verður haldinn um helgina til ... stækka

Frá þjóðfundi, sem haldinn var á síðasta ári. Annar þjóðfundur verður haldinn um helgina til að undirbúa stjórnlagaþing. mbl.is/ Kristinn

Meðalaldur allra frambjóðendanna 523, sem bjóða sig fram til stjórnlagaþings, er 47 ár, sá sami hjá körlum og konum. Elsti karlinn er áttræður og sá yngsti 19 ára. Elsta konan er 66 ára og sú yngsta er 22 ára.

Fram kemur á vef stjórnlagaþings, að frambjóðendur koma úr öllum starfsstéttum, en fjölmennasti hópurinn er í námi eða 45 frambjóðendur og næst fjölmennasti hópurinn stundar kennslu eða 44. Þar af eru 7 prófessorar.

32 framkvæmdastjórar eða forstjórar bjóða sig fram, 28 lögmenn/lögfræðingar, 16 viðskipta-eða hagfræðingar, 15 verkefnastjórar, 13 ráðgjafar, 12 blaða- eða fjölmiðlamenn, 11 verkfræðingar, 10 arkitektar, 10 læknar, 10 stjórnmálafræðingar, 6 bændur, 3 prestar og 5 skrá sig atvinnulausa.

Um 78% frambjóðenda búa á höfuðborgarsvæðinu og 22% utan höfuðborgarsvæðisins. Þá eru sjö frambjóðendur búsettir erlendis.

Listi yfir frambjóðendur til stjórnlagaþings

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is