Frambjóðendur kynna sig

Frambjóðendur til stjórnlagaþings streyma nú í hljóðstofur Ríkisútvarpsins til að kynna stefnu sína og sjálfa ... stækka

Frambjóðendur til stjórnlagaþings streyma nú í hljóðstofur Ríkisútvarpsins til að kynna stefnu sína og sjálfa sig. mbl.is/Árni Sæberg

Frambjóðendur til stjórnlagaþings streyma nú í hljóðstofur Ríkisútvarpsins og gera grein fyrir stefnumálum sínum. Öllum 523 frambjóðendunum var boðin þátttaka í kynningarþáttum RÚV og er talið að flestir þeirra þekkist boðið.

„Um 95% þeirra sem við höfum haft samband við eru mjög jákvæðir,“ sagði Ásgeir Eyþórsson, kynningarstjóri Rásar 2, en hann hefur umsjón með verkefninu. Hann telur að a.m.k. 80% frambjóðenda, 400-500 manns, mæti í  upptökur á þeim tíma sem þeir voru boðaðir. Upptökurnar hófust í morgun og standa fram á mánudagsmorgun.

Fyrirkomulagið er þannig að hópur frambjóðenda svarar stöðluðum spurningum spyrils í hljóðveri. Hver frambjóðandi fær fimm mínútur til að svara. Þrír spyrlar skipta með sér verkum. Hringt verður í þá frambjóðendur úti á landi og erlendis sem hafa ekki tök á að koma í hljóðverið. 

Útsending á kynningunum hefjast á mánudagskvöld á Rás 1. Kynningarnar verða einnig settar á vefinn www.ruv.is þar sem hver frambjóðandi fær sitt svæði. Þar verður hægt að hlusta á viðtal við hvern frambjóðanda um sig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is