Segir Jóhönnu í herferð gegn sér

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands. Kristinn Ingvarsson

„Það má segja margt um samskipti okkar Jóhönnu,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson í útvarpsviðtali í morgun. Hann segir forsætisráðherra í herferð gegn sér og að hún hafi róið að því öllum árum að finna frambjóðanda gegn honum.

Þetta sagði Ólafur Ragnar í Sprengisandi, þætti Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni í morgun.

„Eftir að ég tók ákvörðun um Icesave er ljóst að Jóhanna hefur aldrei fyrirgefið og hefur verið í ýmiss konar leiðöngrum gegn mér. Hún telur þetta vera dauðasök,“ sagði forsetinn.

Hann sagði framgöngu forsætisráðherra líklega einsdæmi, en hún hefði meðal annars talað gegn honum á  flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar. „Það er einsdæmi og mér þykir þetta leitt, þetta stríð sem Jóhanna telur sig þurfa að vera í gegn mér.“

Ekki gott fyrir lýðveldið

Hann sagði Jóhönnu og aðstoðarmann hennar hafa lagt mikið á sig til að finna frambjóðanda gegn honum.

„Ég tel það ekki gott fyrir lýðveldið að það séu þannig tengsl á milli forseta og forsætisráðherra, þessi tortryggni,“ sagði Ólafur Ragnar.

Hann sagði að samskipti hans við fyrrverandi forsætisráðherra hefðu verið talsvert betri, þrátt fyrir að þeir hefðu haft ólíkar skoðanir. „Þótt það hafi hvesst á milli okkar Davíðs Oddssonar (ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra), það kann sumum að þykja það merkilegt, en ég átti að mörgu leyti eðlilegra samband við hann en núverandi forsætisráðherra.“

Ólafur Ragnar sagði að Icesave hefði valdið vatnaskilum í þessum efnum, ekki bara hvað varðar samskipti við ríkisstjórnarflokkana, heldur einnig við vini og stuðningsmenn til margra ára. 

Þarf að geta tekið óvinsælar ákvarðanir

„Það eru ekki bara Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir sem eru í leiðangri gegn mér, heldur líka stuðningsmenn og vinir til margra ára. En þetta sýnir að það geta komið þær stundir á ferli forseta að hann þarf að vera tilbúinn til að taka ákvarðanir sem veita honum óvinsældir,“ sagði forsetinn og sagðist furða sig á ummælum eins forsetaframbjóðandans um að vilja ekki fara í stjórnmál vegna þess að þau væru „óvinsæl“. 

„Forseti þarf að hafa burði til að taka ákvarðanir þó að hluti Alþingis eða gamlir vinir verði æfir.“

Kemur ekki til greina að hætta við

Spurður hvort það væri ekki forseta til vansa að hafa ekki traust alls Alþingis benti Ólafur Ragnar á að það hefði fylgt embættinu alla tíð, allt frá tíð Sveins Björnssonar.

Sigurjón spurði Ólaf Ragnar hvort til greina kæmi að hætta við framboðið. Hann sagði það ekki koma til greina, hann teldi stórmál vera í húfi. Helstu stofnanir samfélagsins nytu vantrausts, enginn vissi hvað myndi gerast í næstu kosningum og mikil óvissa ríkti varðandi mikilvæg mál eins og kvótamál og Icesave.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert