Átta nýir árgangar kjósa forseta

Átta árgangar ungra Íslendinga hafa fengið kosningarétt síðan síðast var kosið til embættis forseta Íslands, árið 2004.

Segja má að kosningarnar í sumar verði jafnframt þær fyrstu í 16 ár þar sem raunveruleg samkeppni er um forsetastólinn. Á því tímabili hafa gróflega áætlað um 75.000 nýir kjósendur bæst í hópinn.

Margir eru því spenntir fyrir kosningunum í júní en sitt sýnist hverjum um embættið. Mbl.is fór á stúfana og ræddi við framhaldsskólanema um forsetaembættið og kosningabaráttuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert