Forsetaframboð Ástþórs ógilt

Forsetakosningar fara fram 30. júní.
Forsetakosningar fara fram 30. júní. Brynjar Gauti

Sex verða í framboði til kjörs forseta Íslands en innanríkisráðuneytið mat framboð Ástþórs Magnússonar ekki gilt. Ráðuneytið taldi að þar sem ekki lægi fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis væru ákvæði 4. gr. laga um framboð og kjör forseta Íslands, nr. 36/1945, ekki uppfyllt.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að það telji jafnframt að gera verði þá kröfu að vottorð sem frambjóðandi leggur fram á grundvelli 4. gr. laga um framboð og kjör forseta Íslands skuli gefin án fyrirvara um gildi þeirra.

Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis upplýsti Ástþór Magnússon Wium og innanríkisráðuneytið 25. maí 2012 að allar forsendur væru brostnar fyrir útgáfu vottorðs gildra meðmæla úr Vestfirðingafjórðungi sem kjörstjórnin hafði gefið út til hans 22. maí 2012. Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis, Reykjavíkurkjördæmis suður og Reykjavíkurkjördæmis norður gáfu út vottorð með fyrirvara um gildi undirskrifta meðmælenda með framboði hans. Yfirkjörstjórnir Suðurkjördæmis og Suðvesturkjördæmis vottuðu meðmælendalista Ástþórs án athugasemda.

Forsetaframbjóðendur eru Andrea Jóhanna Ólafsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Hannes Bjarnason, Herdís Þorgeirsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir.

Í samræmi við 4. gr. laga um framboð og kjör forseta Íslands hafa einnig verið afgreidd til Hæstaréttar Íslands skjöl er varða ofangreind framboð, þ.e. samþykki forsetaefnis, nægileg tala meðmælenda og vottorð yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningarbærir.

Þetta er í annað sinn sem framboð Ástþórs Magnússonar til forseta er ógilt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert