Þóra þiggur ekki boð Stöðvar 2

Þóra Arnórsdóttir við opnun kosningamiðstöðar sinnar..
Þóra Arnórsdóttir við opnun kosningamiðstöðar sinnar.. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi hefur tekið ákvörðun um að þiggja ekki boð Stöðvar tvö um að mæta Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands í kappræðum.

Sex eru í framboði til forseta Íslands. Aðrir frambjóðendur hafa gagnrýnt Stöð tvö fyrir að bjóða einungis tveimur frambjóðendum til kappræðna.

„Fyrir nokkru fékk ég boð frá Stöð 2 um að mæta til sjónvarpsumræðna að kvöldi sjómannadags, 3. júní. Ég hef tekið ákvörðun um að þiggja ekki þetta boð og ítreka fyrri áskorun mína til Stöðvar 2 um að breyta viðmiðum sínum um hverjum verði boðið til þessarar fyrstu sjónvarpsumræðu. Þegar boðið barst mér sendi ég forsvarsmanni Stöðvarinnar bréf og óskaði eftir því að fyrirkomulag umræðunnar yrði endurskoðað. Lýsti ég því sjónarmiði að þátturinn markaði í raun upphaf kosningabaráttunnar. Það væri okkar litla lýðræðisríki nauðsynlegt á þessum tímapunkti að allir þeir sem fengið hefðu staðfestingu á löglegu framboði fengju jafnt tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Ég þáði því aldrei boðið.

Ég hef haft það viðmið að svara öllum fjölmiðlum sem hafa óskað eftir viðtali, stórum og litlum, innlendum sem erlendum og hef ekki skipt mér af þeirra fréttamati. Ég hlakka til að mæta Ólafi Ragnari Grímssyni í umræðum í sjónvarpssal, en ekki á kostnað annarra frambjóðenda. Það er ekki sjálfsagt fyrir frambjóðanda að afþakka tækifæri til þess að koma fram í sjónvarpi í beinni útsendingu í meira en klukkustund og koma sinni sýn á framfæri. 
En ég hef sagt frá upphafi að ég vilji geta verið stolt af öllu því sem ég hef sagt og gert í þessari kosningabaráttu - og það gengur einfaldlega gegn minni sannfæringu og réttlætiskennd að þiggja þetta boð,“ segir í yfirlýsingu frá Þóru.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert