Eðlilegt að gefa upp afstöðu

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Ómar Óskarsson

„Það hefur verið sagt að evran sé það sem að við erum að sækjast eftir. En þá bendi ég á það að ef við tökum Norður-Evrópu og byrjum á Grænlandi og förum yfir Ísland, Færeyjar og Bretlandseyjar, til Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur, þá er það ekki fyrr en við komum til Finnlands sem við finnum land í Norður-Evrópu sem er evruland,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson í kappræðum sem haldnar voru í Hörpu í kvöld.

Farið var yfir víðan völl í umræðunum og m.a. fjallað um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Ólafur Ragnar benti á að nánast öll lönd í Norður-Evrópu, að Finnlandi undanskildu, hafa ákveðið að halda í eigin gjaldmiðil og telja þannig sínum hagsmunum best þjónað.

„Þess vegna tel ég að minn ágæti vinur, utanríkisráðherra, eigi erfitt verk fyrir höndum. Að í fyrsta lagi ná samningum í málinu sjálfu og í öðru lagi að sannfæra þjóðina. Vegna þess að bæði grundvallarhagsmunir Íslendinga í sjávarútvegsmálum, auðlindamálum og varðandi legu landsins og gjaldmiðilinn einnig, eru þess eðlis að það þjónar ekki hagsmunum okkar að ganga í Evrópusambandið,“ sagði Ólafur Ragnar.

Eðlileg krafa að þjóðin viti afstöðu frambjóðenda

Forsetinn segir ekkert eitt mál koma til með að hafa jafn afdrifarík áhrif á íslenska stjórnskipun, fullveldi og þjóðarhag í framtíðinni og hugsanleg aðild Íslands að Evrópusambandinu. Því segir hann það vera eðlilega kröfu að þjóðin viti hvaða skoðun frambjóðendur til embættis forseta Íslands hafi í málinu.

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi tók því næst til máls. „Annars vegar erum við ósammála um það hvort forsetinn eigi að taka þátt í umræðum og skipa sér í raðir, þ.e.a.s. að berjast gegn aðild eða berjast fyrir henni, eftir því hver skoðun hans er. Það er vegna þess að ég held að forsetinn eigi að vera forseti allra Íslendinga, og í hvaða stöðu er hann eftir atkvæðagreiðslu þar sem að hluti þjóðarinnar er hjartanlega ósammála honum?“

Þóra segist þó vera sammála forsetanum um að halda eigi þjóðaratkvæðagreiðslu að loknum samningum við Evrópusambandið.

„Þjóðhöfðingjar almennt í Evrópu, sem ekki eru pólitískt kjörnir, hafa almennt ekki haft afskipti af þessum málum,“ sagði Þóra.

Þóra mun því ekki upplýsa um sína afstöðu til málsins. 

Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi segist vera dálítið hugsi þegar kemur að þessu máli. Hún telur það ekki úr vegi að forseti greini frá afstöðu sinni með yfirveguðum hætti. „Því skyldi hann ekki mega leggja eitthvað til málanna ef hann telur að um mikla og brýna hagsmuni þjóðarinnar sé að ræða?“

Hvers vegna á þjóðin að kjósa þig?

Ólafur Ragnar Grímsson: „Ég er reiðubúinn að standa þessa vakt á óvissutímum. Ég hef sýnt að ég er reiðubúinn að beita málskotsréttinum. Ég hef lýst því hvernig ég get sem forseti verið ákveðin trygging ef flokkarnir í landinu koma sér ekki saman um stjórn landsins. Ég hef líka lýst því hér í kvöld að bæði ég og Dorrit myndum hlakka til þess að fá að taka þátt í því verkefni að tengja saman nýsköpun og fjölbreytni í atvinnulífi með menningu og listum og tryggja þannig Íslendingum betri framtíð.“

Þóra Arnórsdóttir: „Vegna þess að það er einfaldlega kominn tími á breytingar í íslenskt samfélag: Að fá nýjan tón og nýjan takt. Kynslóðaskipti vissulega og ég segi að forsetinn eigi að breiða út bjartsýni, jákvæðni, gleði og sátt. Og það er það sem ég hyggst einbeita mér að því að gera.“

Herdís Þorgeirsdóttir: „Vegna þess að ég tel að ég geti boðið krafta mína fram af heilindum. Byggt á mínu lífsstarfi, byggt á mínum rannsóknum, þekkingu og fræðum. Meira að segja rekstri fyrirtækis í tíu ár. Hafandi alið upp fjögur börn, ein. Ég held ég hafi margt til málanna að leggja og mig langar til þess að þjóna íslenska lýðveldinu og mig langar til þess að taka þetta starf að mér. Ég geri það af fullum heilindum.“

Herdís Þorgeirsdóttir
Herdís Þorgeirsdóttir mbl.is/Golli
Þóra Arnórsdóttir ásamt Svavari Halldórssyni.
Þóra Arnórsdóttir ásamt Svavari Halldórssyni. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert