Óskar Ólafi til hamingju með endurkjörið

Lilja Mósesdóttir, alþingismaður.
Lilja Mósesdóttir, alþingismaður. mbl.is/Sigurgeir S.

Lilja Mósesdóttir alþingismaður hefur óskað Ólafi Ragnari Grímssyni til hamingju með endurkjör hans sem forseta Íslands. Þetta kemur fram á Facebook-síðu hennar í dag en tilefni skrifanna er frétt á Vísir.is í hádeginu um að enginn þingmaður hefði þá óskað Ólafi til hamingju.

„Ég er búin að senda forsetanum tölvupóst, þar sem ég óska honum til hamingju með glæsilegan sigur í forsetakosningunum. Val þjóðarinnar á forseta stjórnast nú í meira mæli en áður af mati hennar á því hverjum hún treystir til að tryggja beint lýðræði þegar gjá myndast milli þjóðar og þings,“ segir Lilja.

Þá hafi flokkur hennar, Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar, einnig „óskað forsetahjónum og þjóðinni allri til hamingju með úrslit kosninganna“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert