Ofbýður ummæli í sinn garð og forsetans

Guðni Ágústsson er einn þeirra sem stóð fyrir undirskriftarsöfnum til …
Guðni Ágústsson er einn þeirra sem stóð fyrir undirskriftarsöfnum til þess að fá Ólaf Ragnar Grímsson til að bjóða sig fram til endurkjörs mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og formaður Framsóknarflokksins, íhugar nú hvort hann eigi að höfða mál gegn Davíð Þór Jónssyni, guðfræðingi og fræðslufulltrúa Austurlandsprófastdæmis. Guðna mislíkar mjög ummæli í grein Davíðs Þórs, Að kjósa lygara og rógtungu, sem Davíð Þór birti á heimasíðu sinni daginn fyrir forsetakosningarnar. Guðni ræddi málið við Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup Íslands, í gær.

„Maður gerir meiri kröfur til manna sem hafa gengið í guðfræðideild og lært siðfræði og ætla að boða hið góða orð kirkjunnar en annarra. Það hefur Davíð Þór gert og hann býður sig sjálfsagt síðar fram til prestvígslu. Hann hefur fengið starf hjá kirkjunni við að þjóna börnum og unglingum sem fræðslufulltrúi. Ég geri miklar kröfur til manna í þessari stöðu og sætti mig ekki við svo persónulegar svívirðingar og níð um forseta landsins sem þarna birtust. Svo vænir hann mig um að hafa starfað í nasistahreyfingu. Guð hjálpi mér! Sannarlega hef ég haft skömm á nasistum alla tíð og aldrei gengið þeim á hönd. Ég hef verið í Framsóknarflokknum, þjóðkirkjunni og ungmennafélagshreyfingunni,“ sagði Guðni. Hann kvaðst ekki sætta sig við að vera borinn slíkum sökum og hafa því talað við biskup Íslands.

„Ég sagði við hana að mér þætti þetta vera ófær framkoma hjá hennar þjóni. Ég gerði kröfur til þess sem heiðarlegur maður og kristinn að þessi maður gjaldi fyrir orð sín bæði í minn garð og forsetans.“

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson mbl.is/Árni Sæberg
Davíð Þór Jónsson
Davíð Þór Jónsson mbl.is/Brynjar Gauti
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert