Framsókn fengi 19,5%

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Styrmir Kári

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á meðal almennings á tímabilinu 31. janúar til 6. febrúar. Framsóknarflokkurinn bætir við sig nokkru fylgi í kjölfar niðurstaðna EFTA-dómstólsins í Icesave-málinu. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 19,5% að þau myndu kjósa Framsóknarflokkinn ef gengið yrðið til kosninga í dag, borið saman við 14,8% á tímabilinu 15.-20. janúar 2013. Björt framtíð hefur bætt verulega við sig fylgi á árinu 2013. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 17,8% að þau myndu kjósa Bjarta framtíð nú, borið saman við 11,5% í desember 2012.

Fylgi Samfylkingar og Vinstri grænna hefur dregist nokkuð saman á árinu 2013. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 16,2% myndu kjósa Samfylkinguna nú, borið saman við 17,4% í desember 2012, og 8,6% sögðu að þau myndu kjósa Vinstri græn nú, borið saman við 11,2% í desember 2012.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi allra flokka en fylgi flokksins hefur þó dregist saman á árinu. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 33% myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn nú borið saman við 37,4% í desember 2012.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 0,9% að þau myndu kjósa Dögun ef gengið yrði til kosninga í dag, 1,8% Hægri-græna, 0,7% Samstöðu og 1,4% sögðu að þau myndu kjósa aðra flokka ef gengið væri til kosninga í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert