Samstaðan er ekki brostin

Rakel Sigurgeirsdóttir er varaformaður Samstöðu en Lilja Mósesdóttir er formaður.
Rakel Sigurgeirsdóttir er varaformaður Samstöðu en Lilja Mósesdóttir er formaður.

Landsfundur Samstöðu - flokks lýðræðis og velferðar hefur samþykkt að bjóða ekki fram í komandi alþingiskosningum. Í komandi alþingiskosningum mun flokkurinn einbeita sér að því að hafa mótandi áhrif á stjórnmálaumræðuna.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Samstaða hefur sent á fjölmiðla, en í dag var haldinn landsfundur flokksins að Kríunesi við Elliðavatn.

Fram kemur, að flokkurinn muni beita sér fyrir lausnarmiðaðri umræðu á opinberum vettvangi um brýn mál sem varði lausn á skuldavanda heimilanna, afnám gjaldeyrishafta án þess að snjóhengjunni verði varpað á íslenska skattborgara, betra peningakerfi og framtíðarsýn án ESB-aðildar.

„Skorað var á Lilju Mósesdóttur á fundinum að gefa kost á sér til formanns flokksins. Hún brást við áskoruninni og var kjörin formaður SAMSTÖÐU flokks lýðrsæðis og velferðar með atkvæðum allra sem voru á fundinum.

Rakel Sigurgeirsdóttir er varaformaður og aðrir í stjórn flokksins eru:

Jón Kr. Arnarson, Eiríkur Ingi Garðarsson og Jónas P. Hreinsson. Þessir eru varamenn: Hallgeir Jónsson og Helga Garðarsdóttir,“ segir í tilkynninguni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert