Ögmundur: Einkavæðingardans Bjartrar framtíðar

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. mbl.is/Styrmir Kári

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra gagnrýnir hugmyndir Sjálfstæðisflokksins um einkavæðingu í heilbrigðisþjónustunni og að stjórnmálaflokkurinn Björt framtíð sé reiðbúinn að stíga einkavæðingardans með sjálfstæðismönnum.

„Nú er bara að sjá hvort Sjálfstæðisflokkurinn verði hress og skemmtilegur í kosningabaráttunni, en það mun ráða miklu um óskastjórnarmynstur Bjartrar framtíðar,“ skrifar Ögmundur í pistli á bloggsíðu sína sem ber yfirskriftina „Björt framtíð Sjálfstæðisflokksins“.

Hann bendir á, að í aðdraganda komandi þingkosninga hafi Sjálfstæðisflokkurinn boðað enn á ný einkavæðingu í heilbrigðisþjónustunni.

„Í ályktun landsfundar flokksins segir: „Nýta á kosti fjölbreyttra rekstraforma í heilbrigðiskerfinu ..." Þetta er gamalkunnugt dulmál fyrir einkavæðingu. Ekkert er byltingarkennt við það í sjálfu sér að Sjálfstæðisflokkurinn tali fyrir einkalausnum í velferðarþjónustunni. En hreinskilnin er vissulega þakkarverð og gott að fá að vita þetta fyrir kosningar en ekki eftir þær. Sjálfstæðisflokkurinn segist vilja  auka heilbrigðisþjónustuna en án þess að hækka skatta. Þvert á móti eigi að lækka skatta. Það þýðir að Sjálfstæðisflokkurinn vill láta sjúklingana borga beint,“ skrifar Ögmundur.

„En hvaða stjórnmálaflokkur skyldi vilja stíga þennan dans með Sjálfstæðisflokknum? Svarið fengum við þegar Björt Framtíð kynnti stefnu sína. Þar kom fram að sá flokkur vilji stefna að fjölbreytilegri rekstrar- og þjónustuformum í velferðarþjónustunni og í skólakerfinu. Þetta er einsog tekið upp úr pólitískri orðabók Sjálfstæðisflokksins.

Þarna tala Sjálfstæðisflokkurinn og Björt framtíð á svipuðum nótum.
Nú er bara að sjá hvort Sjálfstæðisflokkurinn verði hress og skemmtilegur í kosningabaráttunni, en það mun ráða miklu um óskastjórnarmynstur Bjartrar framtíðar. Í Fréttablaðinu sl. helgi er haft eftir öðrum leiðtoga flokksins að „hegðun annarra flokka í kosningabaráttunni muni ráða því með hverjum Björt framtíð vilji helst starfa.",“ segir Ögmundur ennfremur.

Hann segir að kjósendur eigi heimtingu á að vita hvert vegferðinni sé heitið. Sjálfstæðisflokkurinn hafi talað skýrt og Björt framtíð hafi nú einnig opnað sig.

„Ef þessum flokkum vegnar vel og þeir reynast hvor öðrum ástúðlegir í kosningabaráttunni og að kosningum loknum munu eflaust sameinast um einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu og að koma á laggirnar prívatskólum.

Núverandi stjórnarflokkar vilja fara aðra leið: Efla félagslegt heilbrigðiskerfi sem fjármagnað er með skattgreiðslum þeirra sem eru heilbrigðir og færir um að vinna en ekki með sjúklingagjöldum,“ segir Ögmundur.

Hann bendir á, að íslensk a heilbrigðiskerfið hafi fengið þá einkunn hjá OECD fyrir fáeinum árum að hér væri hverri krónu varið á hagkvæmari átt en gerðist með öðrum þjóðum. Íslendingar hafi hins vegar gengið of langt í að innleiða bein gjöld sjúklinga í kerfinu. Það leiði til mismununar sem eigi ekki að líðast. Markmiðið eigi að vera að vinda ofan af þessari öfugþróun en ekki ganga enn lengra í ranglætisátt.

„Björt framtíð setur það í kosningaáherslur sínar að lykilatriðið sé „ekkert vesen". En kosningar til Alþingis snúast ekki um mjúkmælgi og skemmtilegheit, heldur einmitt um að færa fram í dagsljósið hvert stefna skal að loknum kosningum. Og ef einkavæða á heilbrigðisþjónustuna þá mun það ekki aðeins kalla á mikið „vesen", heldur líka aukinn ójöfnuð og óhagræði að hætti hægri manna. Um þetta verður kosið í vor,“ segir Ögmundur Jónasson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert