Framsóknarflokkurinn stærstur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins en Framsóknarflokkurinn er stærsti flokkurinn …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins en Framsóknarflokkurinn er stærsti flokkurinn á Íslandi ef marka má nýja könnun MMR. mbl.is/Styrmir Kári

Framsóknarflokkurinn heldur áfram að bæta við sig fylgi og mælist nú með mest fylgi allra flokka á Íslandi.

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 22. til 25. mars 2013. Framsóknarflokkurinn heldur áfram að bæta við sig fylgi og mælist nú með mest fylgi allra flokka á Íslandi. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 29,5%, borið saman við 25,9% í síðustu mælingu.

Sjálfstæðisflokkurinn missir áfram fylgi og mælist hann nú 24,4% borið saman við 27,2% í síðustu mælingu. Eins dalar fylgi Bjartrar framtíðar nokkuð og mælist nú 12% borið saman við 15,2% í síðustu mælingu.

28,7% styðja ríkisstjórnina

Stuðningur við önnur framboð ýmist stóð í stað eða breyttist lítillega. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 28,7%.

Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 12,5% og Vinstri grænna 8,5%. Aðrir stjórnmálaflokkar fengju ekki mann á þing.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka.

Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“.

Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,7% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,7%), myndu skila auðu (6,3%), myndu ekki kjósa (1,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,8%).

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert