Framsókn eykur forskotið

Kjósandi kemur út úr kjörklefa í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Kjósandi kemur út úr kjörklefa í Ráðhúsi Reykjavíkur. mbl.is/reuters

Framsóknarflokkurinn heldur áfram að bæta við sig fylgi og er nú með 30,9%, samkvæmt nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Morgunblaðið. Ef þetta yrðu úrslit kosninga gæti Framsóknarflokkurinn myndað tveggja flokka meirihlutastjórn bæði til hægri og vinstri, með Sjálfstæðisflokknum eða Samfylkingunni.

Könnunin var gerð í byrjun mánaðarins. Fylgi við Framsóknarflokkinn eykst um 2,4 prósentustig frá könnun Félagsvísindastofnunar í byrjun mars en hann tvöfaldar fylgi sitt frá síðustu kosningum.

Í umfjöllun um könnunina í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að Sjálfstæðisflokkurinn yrði áfram næststærsti flokkur landsins, en fylgi hans heldur áfram að dala. Flokkurinn fengi 18,9% ef gengið yrði til kosninga nú en fylgið var 26,1% í síðustu könnun og 23,7% í síðustu kosningum til Alþingis.

Píratar auka fylgi sitt og ná yfir 5%-markið. Fylgi Bjartrar framtíðar minnkar heldur, fer úr 11,4 í 10,9% og Samfylkingin er með 12,6% en flokkurinn fékk tæp 30% í síðustu kosningum. VG fengi 8,8% ef gengið yrði til kosninga nú sem er heldur meira en í síðustu könnun en aðeins brot af fylginu í kosningunum þegar flokkurinn fékk 21,7% atkvæða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert