„Ég útiloka ekkert“

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Ómar Óskarsson

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í þættinum Forystusætið á RÚV að hann hefði íhugað síðustu daga að draga sig í hlé sem formaður flokksins. „Ég útilokað ekki neitt,“ sagði hann þegar hann var spurður hvort hann væri að íhuga að hætta.

„Þetta fylgistap er okkur mjög mikið áhyggjuefni og fyrir mig persónulega mikil vonbrigði vegna þess að flokkurinn hafði verið með 36% fylgi frá miðju ári 2010 og alveg fram í febrúar á þessu ári,“ sagði Bjarni þegar hann var spurður út í fylgistap Sjálfstæðisflokkurinn, en flokkurinn hefur verið að mælast með um eða innan við 20% fylgi í skoðanakönnunum síðustu daga.

„Erfitt að yfirtrompa þá sem ætla að leysa öll vandamál heimila“

Bjarni sagði að ýmsar ástæður væru fyrir þessu fylgistapi. Þegar Icesave-dómurinn féll í febrúar hefðu orðið viss vatnaskil sem hefði skilað Framsóknarflokknum auknu fylgi. Mál sem Framsóknarflokkurinn setti á dagskrá hefði orðið aðalkosningamálið, þ.e. skuldavandi heimilanna. „Þar bjóða þeir best. Það er erfitt að yfirtrompa þá sem ætla einfaldlega að leysa öll vandamál skuldsettra heimila“.

Bjarni sagði að þegar þetta færi saman við almennt ástand í þjóðfélaginu, þar sem margir ættu um sárt að binda, fólk kæmi í lok þessa kjörtímabil með brostnar væntingar og traust til stjórnmálanna og þingsins væri í lágamarki, gæti allt gerst.

„Ég held að það sem er að gerast hjá Sjálfstæðisflokknum núna sé blanda af mörgum þáttum. Hann er að tapa mjög miklu fylgi á skömmum tíma. Ég tel að þetta sé blanda af mörgum þáttum og ég skal alls ekki taka sjálfan mig út úr þeirri mynd,“ sagði Bjarni.

„Það hefur ekki hvarflað að mér að stíga til hliðar þó að það hafi blásið á móti, en ég verð að viðurkenna að núna, svona nálægt kosningum, og í ljósi þeirrar umræðu sem er að grafa um sig í þjóðfélaginu, að hluti vandans sé að einhverju leyti tengdur formanninum, að þá get ég bara ekki leyft mér annað en að velta því fyrir mér. Ég verð að gera það,“ sagði Bjarni.

„Öfl innan Sjálfstæðisflokksins sem eru þarna á ferðinni“

Bjarni var spurður út í skoðanakönnun sem birtist í Viðskiptablaðinu í dag þar sem kemur fram að fleiri myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef Hanna Birna Kristjánsdóttir væri formaður flokksins.

Bjarni sagði að það kæmi sér í opna skjöldu að menn væru að gera kannanir eins og þessa sem væri augljóslega beint gegn sér. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sömu aðilar eru að efna til könnunar af þessum toga á viðkvæmum tímapunkti. Ég held að væri næstum ómannlegt að taka það ekki til sín sem þar segir, að það gæti gert flokknum gagn að stíga til hliðar.“

Bjarni sagði aðspurður að það lægi fyrir að þeir sem stæðu að þessari könnun væru stuðningsfólk Hönnu Birnu. „Eigendur blaðsins [Viðskiptablaðsins] eru kosningastjóri hennar og þar eru líka starfsmenn sem hafa starfað fyrir hana. Ég ætla henni hins vegar ekki að vera stýra neinu af þessum toga. Ég vil taka það skýrt fram. En það er alveg greinilegt að það eru öfl innan Sjálfstæðisflokksins sem eru þarna á ferðinni. Ég held að það blasi við öllum.“

„Kveinka mér ekki undan árásum andstæðinga flokksins“

Bjarni sagði að það hefði aldrei vafist fyrir sér að svara árásum sem hefðu beinst að sér persónulega. Hann hefði þurft að svara fyrir þátttöku sína í atvinnulífinu. Þetta hefðu verið ómaklegar árásir, en hann hefði ekki kveinkað sér undan því að svara þeim. „Ég hef aldrei kveinkað mér undan árásum andstæðingum flokksins. Það er hins vegar mun erfiðara að takast á við óánægjuraddir innan flokksins. Ég tala nú ekki um ef það er einhver undirróður,“sagði Bjarni.

Bjarni sagðist ekki telja að Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki tekst nægilega vel að gera upp við hrunið. Mælikvarðinn á það væri afstaða kjósenda til flokksins. Það hefði ekki hjálpað við uppgjörið á hruninu að menn voru settir á sakamannabekk eins og gert var í Landsdómsmálinu. Það hefði verið ótrúlega vanhugsuð aðgerð.

Bjarni var spurður hvort að það hefði valdið honum erfiðleikum að vera með aftursætisbílstjóra. „Ég finn aldrei fyrir neinum þrýstingi frá neinum aftursætisbílstjórum. Ég hef hins vegar reynt að stýra Sjálfstæðisflokknum þannig að ég nái að leiða hann sem eina heild. Ég er mjög stoltur af því að þetta er eini flokkurinn sem ekki klofnaði á þessu kjörtímabili á Alþingi. Það hefur ekki alltaf verið auðvelt. Það hefur þurft að taka tillit til margra ólíkra sjónarmiða,“ sagði Bjarni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert