Mælast svipað stórir í könnun MMR

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar.
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar. mbl.is

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 22. til 25. apríl 2013. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 26,7%, borið saman við 27,5% í síðustu mælingu og Framsóknarflokkurinn mælist nú með 22,4% fylgi, borið saman við 25,6% í síðustu mælingu. Þrátt fyrir að munur á fylgi þessara tveggja flokka mælist nú 4,3 prósentustig er sá munur innan vikmarka (miðað við 95% vikmörk) og því ekki hægt að álykta að annar flokkurinn hafi meira raunfylgi en hinn.

Samfylkingin mælst nú með 13,0% fylgi, borið saman við 13,5% í síðustu mælingu og Vinstri græn mælast nú með 11,6% fylgi, borið saman við 8,1%. Björt framtíð mælist nú með 7,7% fylgi borið saman við 8,3% í síðustu mælingu og Pírataflokkurinn mælist nú með 7,5% fylgi, borið saman við 6,7% í síðustu mælingu. Lýðræðisvaktin mælist nú með 3,5% fylgi, Dögun með 2,9% fylgi, Flokkur heimilanna með 1,8% fylgi, Hægri grænir með 1,3% fylgi, Sturla Jónsson með 0,8% fylgi, Regnboginn með 0,5% fylgi, Alþýðufylkingin með 0,1% og Landsbyggðarflokkurinn með 0,2% fylgi. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 32,6% en mældist 26,4% í síðustu könnun. 

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“.

Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 88,0% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,2%), myndu skila auðu (4,4%), myndu ekki kjósa (1,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,4%). 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri*, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1101 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 22. til 25. apríl 2013


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert