Stjórnarflokkarnir tapa tæpum 28%

Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. mbl.is

Stjórnarflokkarnir tapa samtals 27,7% fylgi frá síðustu kosningum, Samfylkingin tapar 16,9% og Vinstri græn 10,8%. Á landsvísu bætir Framsóknarflokkurinn við sig 9,6%, Sjálfstæðisflokkur bætir við sig 3%, 

Nýju flokkarnir tveir, Björt framtíð og Píratar fá samtals 13,3%, sá fyrrnefndi 8,2% og sá síðarnefndi 5,1%.

Sjálfstæðisflokkur er stærsti flokkur landsins, fékk 26,7% atkvæða og 19 þingmenn. Framsókn er sá næst stærsti með 24,4% og 19 þingmenn. Samfylkingin fékk 12,9% atkvæða og níu þingmenn, Vinstri græn fengu sjö þingsæti, Björt framtíð fékkþrjá og Píratar fengu þrjá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert