Björt framtíð fengi sex í borginni

Sigurður Björn Blöndal og Jón Gnarr
Sigurður Björn Blöndal og Jón Gnarr mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir
Björt framtíð mælist með svipað fylgi og Besti flokkurinn fékk í síðustu kosningum samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Nær helmingur kjósenda hefur ekki gert upp við sig hvað hann ætlar að kjósa.

Hringt var í 1.809 manns þar til náðist í 1.158, þar af 439 Reykvíkinga, samkvæmt lagskiptu úrtaki dagana 30. og 31. október. Svarhlutfallið var því 64 prósent. Könnunin er því gerð eftir að Jón Gnarr borgarstjóri tilkynnti að hann fari ekki fram að nýju í kosningunum næsta vor og að Besti flokkurinn verði lagður niður.

Pólitískur arftaki Besta flokksins, Björt framtíð, fær samkvæmt könnuninni svipað fylgi og Besti flokkurinn fékk í síðustu kosningum, 36,1 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn tapar einhverju fylgi frá síðustu kosningum og mælist með 27,6 prósent. Samfylkingin og Vinstri grænir standa því sem næst í stað með 19,1 prósents og 7,5 prósenta fylgi. Um 4,5 prósent styðja Framsóknarflokkinn og 4,9 prósent nefndu aðra flokka.

Yrðu þetta niðurstöður kosninga yrði skipting borgarfulltrúa óbreytt. Björt framtíð fengi sex borgarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn fimm, Samfylkingin þrjá og Vinstri græn einn.

Talsverð óvissa er þó um stöðuna í borginni því nær helmingur þeirra sem tóku þátt í könnuninni hafði ekki gert upp við sig hvað hann gæti hugsað sér að kjósa. Þetta háa hlutfall óvissra gæti tengst því hversu stutt er síðan Jón Gnarr tilkynnti um ákvörðun sína, samkvæmt frétt Fréttablaðsins í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert