„Leið til að halda okkur á tánum“

Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs í Árborg.
Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs í Árborg. Kristinn Ingvarsson

„Það er greinilegt að fylgi flokkanna er á mikilli hreyfingu, þessi hefðbundnu flokkar fá allir minna í þessari könnun en þeir fengu í síðustu kosningum,“ segir Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs Árborgar, aðspurður um niðurstöður nýrrar könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sem gerð var fyrir Morgunblaðið.

Vísar Eyþór í fylgi Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins í Árborg, en flokkarnir tapa allir fylgi frá síðustu sveitarstjórnarkosningum.

Í niðurstöðum könnunarinnar kemur fram að hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Árborgar myndi falla ef gengið yrði til sveitastjórnarkosninga á morgun. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 33,3% atkvæða og fjóra menn kjörna, en flokkurinn fékk 50,1% í kosningunum 2010 og fimm bæjarfulltrúa af níu.

Fylgi Bjartrar framtíðar vekur athygli

„Sérstaka athygli vekur mikið fylgi Bjartrar framtíðar, en flokkurinn hefur ekki gefið upp að hann muni bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum í vor, sem og fylgi Pírata og Vinstri grænna,“ segir Eyþór.

Hann segir niðurstöðurnar gefa vísbendingu um að mikil hreyfing sé á fylgi flokkanna. „Þetta ætti að hvetja Bjarta framtíð og Pírata til þess að taka þátt.“

„Það er hollt að enginn gangi að neinu vísu í pólitík,“ segir Eyþór, aðspurður um hvort niðurstöður könnunarinnar séu áhyggjuefni. „Þetta vekur fólk til umhugsunar um hvað íbúar vilja á endanum. Við sáum einnig miklar sveiflur í skoðanakönnunum fyrir síðustu kosningar. Þetta er leið til að halda okkur öllum á tánum.“

Frétt mbl.is: Meirihluti í Árborg myndi falla.

Fylgi flokka í sveitarstjórn Árborgar samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands …
Fylgi flokka í sveitarstjórn Árborgar samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands 7. - 21. nóvember sl.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert