Kópavogur skuldbundinn til að gefa upplýsingar

Frá Kópavogi.
Frá Kópavogi.

Kópavogsbær er skuldbundinn til þess að tilkynna matsfyrirtækinu Reitun um alla þá atburði sem kunna að hafa áhrif á lánshæfismat bæjarins, en bærinn undirritaði samning við fyrirtækið árið 2010 um reglubundið mat á lánshæfi bæjarins.

Berist slík tilkynning til Reitunar kallar Reitun eftir þeim gögnum sem nauðsynleg eru við mat á lánshæfi bæjarins og leggur sjálfstætt mat á fjárhagsleg áhrif þeirra atburða sem um ræðir.

Reitun breytti horfum lánshæfismats Kópavogsbæjar úr stöðugum í neikvæðar vegna umdeildrar ákvörðunar bæjarstjórnar Kópavogs um kaup á 30-40 íbúðum og byggingu tveggja fjölbýlishúsa. 

Meðal þess sem fram kemur í rökstuðningi Reitunar um breyttar horfur bæjarins er að ef útgjöld og fjárfestingar færu umfram áætlanir hefði það neikvæð áhrif á lánshæfismat Kópavogs að öðru óbreyttu, líkt og fram kom í síðustu uppfærslu frá því í október 2013.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Reitunar. Þar ítrekar fyrirtækið að það er óháð matsfyrirtæki sem hefur engra hagsmuna að gæta annarra en þeirra að birta réttar greiningar á því sem er til skoðunar hverju sinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert