Þrír vilja leiða VG í Reykjavík

Sóley Tómasdóttir, Grímur Atlason og Líf Magneudóttir bjóða sig öll …
Sóley Tómasdóttir, Grímur Atlason og Líf Magneudóttir bjóða sig öll fram í fyrsta sætið í Reykjavík. mbl.is/Golli

Í dag velja Vinstri-græn í Reykjavík í fimm efstu sæti framboðslista síns fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Tíu gefa kost á sér. Þrír gefa kost á sér í 1. sætið.

Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi, gefur kost á sér í 1. sætið.

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves, gefur kost á sér í 1. sæti

Líf Magneudóttir, grunnskólakennari, gefur kost á sér í 1. sæti

Birna Magnúsdóttir, fulltrúi hjá Strætó bs., gefur kost á sér í 2.-5. sæti

Elín Oddný Sigurðardóttir, félagsfræðingur, gefur kost á sér í 2.-3. sæti

Gísli Garðarsson, háskólanemi, gefur kost á sér í 3. sæti

Hermann Valsson, lýðheilsufræðingur og íþróttakennari, gefur kost á sér í 3.-4. sæti

Ragnar Karl Jóhansson, uppeldis- og tómstundafræðingur, gefur kost á sér í 3.-5. sæti.

Eyrún Eyþórsdóttir, lögreglukona, gefur kost á sér í 3.-5. sæti.

Ragnar Auðun Árnason, framhaldsskólanemi, gefur kost á sér í 4.-5. sæti.

Kjörstjórn skipa Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður, Álfheiður Ingadóttir, Auður Alfífa Ketilsdóttir, Steinn Harðarson og Stefán Pálsson.

Sjá nánar á vg.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert