Ágæt þátttaka í prófkjöri

Frá kjördeild á Selfossi, en þar hefur verið talsverð þátttaka …
Frá kjördeild á Selfossi, en þar hefur verið talsverð þátttaka í prófkjöri sjálfstæðismanna í dag. Mbl.is / Sigmundur

Ágætis þátttaka er í prófkjöri sjálfstæðismanna í Sveitarfélaginu Árborg sem fram fer í dag.

Klukkan 14 höfðu 448 kosið, þar af 116 utan kjörstaðar. Níu eru í kjöri en nokkur spenna er um úrslitin um annað sætið, en þrír sitjandi bæjarfulltrúar sækjast eftir því sæti.

Prófkjöri lýkur kl. 18 og búist er við fyrstu tölum kl. 20.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert