Óskar mun ekki leiða lista Framsóknarmanna

Óskar Bergsson.
Óskar Bergsson. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Óskar Bergsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, mun ekki leiða flokkinn fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér: 

„Í dag eru tæpir tveir mánuðir til borgarstjórnarkosninga.  Þótt kosningabaráttan hafi  farið rólega af stað höfum við sett fjölmörg mál á dagsskrá sem við teljum eiga erindi við borgarbúa.  Við höfum gagnrýnt núverandi borgarstjórn fyrir miklar gjaldskrárhækkanir, hallarekstur á borgarsjóði og óábyrgar framkvæmdir við Hofsvallagötu, Borgartún og víðar.  Við höfum mótmælt áformum um að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni, að Sundabraut sé slegið á frest og að hætt sé við metnaðarfullt hverfi í Úlfarsárdal, þar sem er möguleiki á að úthluta lóðum á verði sem almenningur ræður við. 

Við höfum bent á að til stendur að byggja íbúðir í miðborginni sem gera ráð fyrir einu bílastæði fyrir hverjar fimm íbúðir sem þýðir að borgin er að bjóða upp á bílastæði í boði nágrannanna.  Til að koma til móts við kröfuna um þéttingu byggðar höfum við bent á uppbyggingarreiti sem eru mun betur til þess fallnir að þétta byggð heldur en Vatnsmýrin.

Við viljum sjá ný atvinnusvæði austar í borginni og færa þannig atvinnutækifæri nær fólkinu sem þar býr.  Við höfum líst áhyggjum okkar vegna tilburða borgarstjórnar um að tala niður úthverfin sem hefur leitt af sér meiri mun á fasteignaverði innan Reykjavíkur en áður hefur sést. Við viljum að unglingar í borginni fá vinnu allt sumarið við fegrun og viðhald borgarlandsins.  Við viljum að flugvöllurinn  sem er lífæð höfuðborgar og landsbyggðar verði áfram í Vatnsmýrinni.

Þrátt fyrir þessi stefnumál, sem ég tel að eigi hljómgrunn meðal almennings, hefur málstaður okkar ekki náð í gegn. Sem oddviti framboðsins ber ég ábyrgð gengi flokksins í höfuðborginni og staðan sem við horfum á nú er grafalvarleg.  Bóndi sem ekki uppsker úr jarðvegi sínum hefur aðeins um tvo kosti að velja.  Það er að bregða búi eða leita annarra leiða til njóta ávaxta erfiðis síns. 

Þar sem tæpir tveir mánuðir eru til kosninga er enn möguleiki á því að snúa vörn í sókn.  Það er því mitt mat til þess að snúa taflinu við, þá sé réttur tímapunktur núna að ég stígi til hliðar sem oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík.  Í mínum huga er það algjört forgangsmál að skipt verði um meirihluta í borgarstjórn á næsta kjörtímabili og borgin nái aftur því forystuhlutverki sem hún hafði og á að hafa. Ég vil þakka öllum þeim sem hafa lagt mér lið, fyrir stuðning og vináttu sem ég mun ekki gleyma,“ segir í yfirlýsingu frá Óskari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert