Björn Bjarna býður sig fram

Listi sjálfstæðismanna. (F.v.) Elvar Eyvindsson, Jón Óskar Björgvinsson, Kristján Fr. …
Listi sjálfstæðismanna. (F.v.) Elvar Eyvindsson, Jón Óskar Björgvinsson, Kristján Fr. Kristjánsson, Sigríkur Jónsson, Guðmundur J. Viðarsson, Ingibjörg Þorgilsdóttir, Birkir A. Tómasson, Harpa Mjöll Kjartansdóttir og Kristín Þórðardóttir, sveitarstjóraefni listans.

D-listi sjálfstæðismanna og annarra lýðræðissinna í Rangárþingi eystra fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, var samþykktur einróma á félagsfundi í Sjálfstæðisfélaginu Kára í gærkvöldi.

Listann skipar fólk sem hefur starfað að sveitarstjórnar- og landsmálum auk nýrra frambjóðenda, segir í fréttatilkynningu.

Listinn er svohljóðandi:

1. Kristín Þórðardóttir, fulltrúi sýslumanns/lögreglustjóra og sveitarstjórnarmaður

2. Birkir Arnar Tómasson, bóndi og verktaki

3. Guðmundur Jón Viðarsson, bóndi og atvinnurekandi

4. Heiða Björg Scheving, atvinnurekandi og fyrrverandi leikskólastjóri

5. Sigríkur Jónsson, hrossabóndi

6. Víðir Jóhannsson, málarameistari og ferðaþjónustubóndi

7. Harpa Mjöll Kjartansdóttir, klæðskera-og kjólasveinn, starfsmaður Leikskólans Arkar

8. Jón Óskar Björgvinsson, húsasmiður og nemi

9. Svavar Hauksson, símvirki og stjórnarmaður í félagi eldri borgara

10. Katrín Óskarsdóttir, nuddari og myndlistarmaður

11. Kristján Friðrik Kristjánsson, iðnfræðingur

12. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra

13. Ingibjörg Þorgilsdóttir, fyrrverandi starfsmaður SS á Hvolsvelli

14. Elvar Eyvindsson, bóndi og sveitarstjórnarmaður

Kristín Þórðardóttir var jafnframt valin sveitarstjóraefni listans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert