Matthías leiðir L-listann á Akureyri

Matthías Rögnvaldsson er oddviti L-listans á Akureyri.
Matthías Rögnvaldsson er oddviti L-listans á Akureyri.

Matthías Rögnvaldsson, 42 ára kerfisfræðingur frá Akureyri, mun leiða L-listann á Akureyri í sveitastjórnarkosningunum í maí. Framboðslisti L-listans var samþykktur í kvöld og er Matthías nýr oddviti hans.

Matthías er kvæntur Erlu Jóhannesdóttur, hjúkrunarfræðingi og saman eiga þau fimm börn. Matthías er framkvæmdastjóri og stofnandi Stefnu hugbúnaðarhúss ehf.  Hann hefur einnig gengt ýmsum nefndarstörfum fyrir Akureyrarbæ ásamt því að vera einn af skipuleggjendum Atvinnu- og nýsköpunarhelgarinnar.

<span><span>Listinn er sem hér segir:</span></span> <span> </span>
  1. Matthías Rögnvaldsson – Framkvæmdastjóri,  42 ára
  2. Silja Dögg Baldursdóttir – Markaðsfulltrúi,  31 árs
  3. Dagur Fannar Dagsson – Hugbúnaðarráðgjafi, 35 ára
  4. Tryggvi Þór Gunnarsson – Bæjarfulltrúi/ Sölumaður, 48 ára
  5. Eva Reykjalín –Viðskiptafræðingur/ Danskennari, 38 ára
  6. Hólmdís Benediktsdóttir – Leikskólakennari, 41 árs
  7. Jóhann Gunnar Sigmarsson – Deildarstjóri, 33 ára
  8. Víðir Benediktsson – Skipstjóri/ Blikksmiður, 54 ára
  9. Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir – Nemi, 20 ára
  10. Ágúst Torfi Hauksson – Ráðgjafi, 40 ára
  11. Geir Kr. Aðalsteinsson – Rekstrarstjóri, 39 ára
  12. Birna Baldursdóttir – Íþróttafræðingur, 33 ára
  13. Inda Björk Gunnarsdóttir – Bæjarfulltrúi/ Leikskólastjóri, 43 ára
  14. Þorvaldur Sigurðsson – Netagerðarmaður, 39 ára
  15. Dusanka Kotaras – Matráður, 47 ára
  16. Ingimar Ragnarsson – Verkstjóri, 47 ára
  17. Dagný Þóra Baldursdóttir – Iðjuþjálfi, 38 ára
  18. Rósa Matthíasdóttir – Jógakennari, 39 ára
  19. Halldór Kristinn Harðarson – Nemi, 20 ára
  20. Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir – Rekstrarfræðingur,  48 ára
  21. Sigurður Guðmundsson – Verslunarmaður, 45 ára
  22. Oddur Helgi Halldórsson – Bæjarfulltrúi/ Atvinnurekandi, 55 ára
Framboðslisti L-listans á Akureyri.
Framboðslisti L-listans á Akureyri.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert