Björt framtíð býður fram í Snæfellsbæ

Sjö efstu á lista Bjartrar framtíðar í Snæfellsbæ.
Sjö efstu á lista Bjartrar framtíðar í Snæfellsbæ.

Björt framtíð í Snæfellsbæ hefur ákveðið að bjóða fram lista til sveitarstjórnarkosninga í bæjarfélaginu hinn 31. maí næstkomandi.

Ákvörðun um framboð kemur fram í kjölfar undirbúningsfunda þar sem farið hefur verið yfir málefni sveitarfélagsins, að því er segir í fréttatilkynningu.

Eftirtaldir skipa sjö efstu sæti á lista flokksins:

1. Hallveig Hör, leikskólaliði og hagfræðinemi
2. Sigursteinn Þór Einarsson, húsasmiður og söngvari
3. Gunnsteinn Sigurðsson, kennari, þroskaþjálfi og leikstjóri
4. Helga Lind Hjartardóttir, námsráðgjafi og verkefnastjóri
5. Kolbrún Ósk Pálsdóttir, verkakona og frumkvöðull
6. Birgir Tryggvason, verkamaður og slöngutemjari
7. Halldóra Unnarsdóttir, skipstjóri og frístundaleiðbeinandi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert