Kjördæmasambandið styður Guðna

Guðni Ágústsson.
Guðni Ágústsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Kjördæmasamband Framsóknarflokksins í Reykjavík vill að Guðni Ágústsson leiði framboðslista flokksins í borginni fyrir kosningarnar sem fara fram í næsta mánuði. Guðni hefur notað páskana til að taka ákvörðun og hyggst tilkynna hana á sumardaginn fyrsta, að því er sagði í kvöldfréttum RÚV.

Eins og Morgunblaðið greindi frá á laugardaginn hafa þeir Guðni og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra rætt saman um hugsanlegt framboð Guðna.

Sigmundur Davíð segir að það sé alfarið hlutverk kjördæmasambandsins að raða niður á listann, en ekki formanns flokksins.

Óskar Bergsson ákvað að draga sig í hlé sem oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík í byrjun mánaðarins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert