Mótmæltu afhendingu meðmælalista

Frá Kópavogi.
Frá Kópavogi. mbl.is/Sigurður Bogi

Píratar í Kópavogi mótmæltu beiðni umboðsmanns Sjálfstæðiflokksins í bænum um að fá afhenta lista yfir meðmælendur framboð til sveitarstjórnarkosningar í vor. Þá sendu Píratar Persónuvernd erindi þar sem óskað er eftir áliti á því hvort birting lista yfir meðmælendur samræmist lögum um persónuvernd.

Fram kemur í tilkynningu frá Pírötum, að á fundi yfirkjörstjórnar með umboðsmönnum framboða í Kópavogi í dag hafi komið fram beiðni frá umboðsmanni Sjálfstæðisflokksins um að fá afhenta lista yfir meðmælendur framboða til sveitarstjórnarkosninga nú í vor.

„Strax eftir fundinn sendu Píratar í Kópavogi skrifleg mótmæli við fyrirhugaðri afhendingu meðmælalistanna til yfirkjörstjórnar og óskuðu eftir að yfirkjörstjórn vísaði til lagaheimildar fyrir því að afhenda og þar með stuðla að opinberri birtingu meðmælalistanna,“ segir í tilkynningunni.

„Píratar finna afhendingu þessara gagna ekki stoð í lögum nr. 5/1998 um kosningar til sveitarstjórna.  Þvert á móti má álykta út frá refsiákvæðum laganna, sérstaklega d. og e. liðar 102. gr. og a. og b. liðar 103. gr, að upplýsingur um hvaða lista kjósendur styðja eða kjósa skuli fara leynt. Við teljum að meðmæli um framlagningu lista geti verið túlkuð sem stuðning við þann lista og sem slík skuli fara með þær upplýsingar sem trúnaðarmál. Í lögum nr. 77/2000 um persónuvernd flokkast upplýsingar um stjórnmálaskoðanir sem viðkvæmar persónuupplýsingar,“ segir ennfremur.

Þá draga Píratar í efa þá túlkun sem komi fram á kosningavef innanríkisráðuneytisins um að umboðsmönnum annarra lista sé heimilt að fá afhenta lista meðmælenda framboðslista. Píratar telja að réttur einstaklinga til að halda stjórnmálalegum skoðunum sínum leyndum gangi framar ákvæðum upplýsingalaga. 

Fram kemur, að Píratar hafi sent erindi til Persónuverndar í dag þar sem óskað hafi verið eftir áliti Persónuverndar á því hvort að birting lista yfir meðmælendur framboðslista til sveitarstjórna samræmist lögum um persónuvernd.

„Við höfum enn sem komið er ekki fengið efnisleg svör við erindum okkar hvorki frá yfirkjörstjórn í Kópavogi né Persónuvernd.

Píratar í Kópavogi sjá engan málefnalegan grundvöll fyrir dreifingu upplýsinga um meðmælendur framboðslista. Við teljum að slík dreifing geti dregið úr vilja kjósenda til að skrifa undir slíka lista og þannig gert nýjum stjórnmálaöflum erfiðara fyrir að bjóða fram,“ segir í tilkynningunni.

Hluti af gamalli og úreltri pólitík

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert