Samfylking stærst í borginni

Helstu breytingar á fylgi flokka í Reykjavík frá síðustu könnun Gallup eru þær að Björt framtíð tapar fjórum prósentustigum milli mælinga og á sama tíma eykur Vinstrihreyfingin - grænt framboð fylgi sitt um þrjú prósent og Framsóknarflokkur um tvö. Eins minnkar fylgi Sjálfstæðisflokksins um tvö prósentustig en fylgi Samfylkingar eykst um tvö prósentustig og fylgi Pírata eykst um prósentustig.

Ef kosið yrði til borgarstjórnar nú segjast nær 30% myndu kjósa Samfylkinguna, liðlega 23% Sjálfstæðisflokkinn og tæpt 21% Bjarta framtíð. Tæplega 11% myndu kjósa Pírata, rúmlega 9% Vinstrihreyfinguna - grænt framboð, nær 5% myndu kjósa Framsóknarflokkinn og tæplega 2% Dögun færu borgarstjórnarkosningar fram núna. Liðlega 13% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 7% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef borgarstjórnarkosningar færu fram í dag. Ef borgarfulltrúum er skipt milli flokka út frá niðurstöðum könnunarinnar fengi Samfylkingin fimm borgarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn fjóra, Björt framtíð þrjá, Píratar tvo og Vinstrihreyfingin - grænt framboð fengi einn borgarfulltrúa.

Spurt var: Ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa? En hvaða flokk eða lista er líklegast að þú myndir kjósa? Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?

Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 15. apríl til 7. maí 2014. Heildarúrtaksstærð var 1.591 Reykvíkingur 18 ára eða eldri valinn af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup og þátttökuhlutfall var 60,2%. Vikmörk eru 0,9-3,2%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert