Ekki lengur með meirihluta í bæjarstjórn

Fundur í bæjarstjórn Kópavogs.
Fundur í bæjarstjórn Kópavogs. mbl.is/Árni Sæberg

Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi bætir við sig einum bæjarfulltrúa samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið á fylgi við flokka í sveitarfélaginu.

Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar eina bæjarfulltrúa sínum. Verði þetta úrslit kosninganna í vor er meirihluti þessara tveggja flokka með Y-listanum, sem ekki býður nú fram, fallinn.

Sjálfstæðisflokkurinn er með rétt 40% fylgi og fengi fimm menn kjörna í bæjarstjórn. Hann hefur nú fjóra fulltrúa og fékk í síðustu kosningum 30,2% atkvæða, að því er fram kemur í fréttaskýringu um fylgismælinguna í Kópavogi í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert