Meirihlutinn fallinn í Hafnarfirði

Hafnarfjörður.
Hafnarfjörður. www.mats.is

Meirihluti Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í Hafnarfirði er fallinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið. Samfylkingin tapar miklu, fer úr 40,1% árið 2010 í 24% núna.

Flokkurinn fær þrjá bæjarfulltrúa í stað fimm. Vinstri græn tapa einnig miklu fylgi, fá 8,2% í stað 14,6% árið 2010, en halda sínum eina fulltrúa.

Björt framtíð og Píratar verða sigurvegarar kosninganna samkvæmt könnuninni. Hvorugur flokkanna hefur áður boðið fram til sveitarstjórnar. Fylgi Bjartrar framtíðar mælist 20,4% sem gefur tvo bæjarfulltrúa. Píratar eru með 8,1% fylgi sem tryggir þeim einn mann í bæjarstjórn.

Sjálfstæðisflokkurinn verður stærsti flokkurinn í bænum en tapar talsverðu fylgi og missir einn bæjarfulltrúa. Fylgi hans mælist 31,6% en var 37,2% fyrir fjórum árum. Fær flokkurinn fjóra bæjarfulltrúa, að því er fram kemur í fréttaskýringu um fylgismælingu þessa í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert