Segir yfirlýsingu Guðrúnar ósanna

Guðrún Bryndís Karlsdóttir
Guðrún Bryndís Karlsdóttir

Benedikt Þór Gústafsson hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir Guðrúnu Bryndísi Karlsdóttur, sem skipaði annað sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík í vet­ur fara með ósannindi í grein sinni sem hún ritaði í Kvennablaðið í gær og fjallaði meðal annars um skoðun forsvarsmanna Framsóknarflokksins í Reykjavík á múslimum

Hann segist aðeins einu sinni hafa hitt Guðrúnu Bryndísi í einrúmi og að það hafi verið vegna þess að Óskar Bergsson hafi stigið til hliðar og stokka þurfti upp framboðslistanum. Þá segist hann heldur aldrei hafa verið formaður, né varaformaður kjörstjórnar líkt og Guðrún heldur fram í grein sinni. 

„Ég hef ekki stutt þann málflutning sem nú er viðhafður um afturköllun lóðar múslima eða annarra trúfélaga hér á landi. Þvert á móti hef ég andmælt þessum málflutningi við félaga okkar innan Framsóknarflokksins. Ég hafði samband við þingflokksformann Framsóknarflokksins og tók undir hennar sjónarmið auk þess sem ég lýsti andstöðu minni við aðra framámenn flokksins,“ segir ennfremur í tilkynningunni. 

Tilkynningin í heild sinni:

Ég harma yfirlýsingu Guðrúnar Bryndísar sem birtist í Kvennablaðinu þann 28. maí sl. þar sem hún er ósönn. Eini tveggja manna fundur okkar átti sér stað þegar mér var falið að fara yfir þá stöðu sem komin var upp eftir að Óskar Bergson hafði stigið til hliðar vegna stöðu framboðsins í skoðanakönnunum og að vænta mætti uppstokkunar á framboðslistanum. Ég tek það fram að ég hef aldrei verið formaður né varaformaður kjörstjórnar eins og haldið er fram.

Ég hef ekki stutt þann málflutning sem nú er viðhafður um afturköllun lóðar múslima eða annarra trúfélaga hér á landi. Þvert á móti hef ég andmælt þessum málflutningi við félaga okkar innan Framsóknarflokksins. Ég hafði samband við þingflokksformann Framsóknarflokksins og tók undir hennar sjónarmið auk þess sem ég lýsti andstöðu minni við aðra framámenn flokksins. Ég er kristinn maður og harma þá umræðu sem hefur skapast um fordóma gagnvart öðrum trúarbrögðum. Sú umræða á ekkert skylt við stefnu Framsóknarflokksins.

Blaðamaður Morgunblaðsins átti við mig samtal um daginn og spurði mig hvort fjallað hafi verið um málið í kosningastjórn eða hvort stæði til að fjalla um það. Ég kvað svo ekki vera, né hafi málið ekki verið sett á dagskrá sannleikanum samkvæmt. Eftir á að hyggja hefði ég átt að gera blaðamanninum skýra grein fyrir minni afstöðu og lýsa andúð minni á allri mismunun og fordómum í garð mismunandi trúfélaga. Ég sé mjög mikið eftir því nú að hafa ekki gert það en á þeim tíma taldi ég að mínar prívat skoðanir ættu enga aðkomu að málinu.

Sjá frétt mbl.is: Sakar framsókn um hræðsluáróður

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert